Hér á eftir er minnst á nokkra þeirra, en eins og gefur að skilja er sá listi engan veginn tæmandi.
Ari „fróði“ Þorgilsson (f. 1067 d. 1148)
Af ritum hans hefur ekkert varðveist nema Íslendingabók. Hann er þó talinn hafa samið frumdrögin að Landnámu og Noregskonungasögum. Í Íslendingabók eru ættir raktar og í Landnámu eru niðjatöl landnámsmanna.
Sturla Þórðarson (f. 1214 d. 1284)
Sturla reit Íslendingasögu en í henni eru raktar helstu höfðingjaættir Sturlungaaldar. Hann er einnig talinn hafa átt þátt í ritun Landnámu.
Magnús „prúði“ Jónsson (f. um 1525 d. 1591)
Ættartölubók hans er ekki þekkt, en hún var lögð til grundvallar mörgum síðari ættartölubókum.
Jón „yngri“ Gunnlaugsson (f. um 1640 d. fyrir 1703)
Tók saman ættartölubók árið 1684 og tileinkaði Jóni sýslumanni Þorlákssyni. Sigurður Jónsson á Höskuldsstöðum í Breiðdal jók við þá bók árið 1691.
Jón Halldórsson (f. 1665 d. 1736)
Ættartölubók Jóns er til í frumriti sem að vísu er ekki heilt, en afskrift séra Ásgríms Vigfússonar (1758-1829) er til í heilu lagi og ljósprentun af því kom út árið 1983. Ættartölubókin er varðveitt í safni Jóns Sigurðssonar á handritadeild Landsbókasafns-Háskólabókasafns.
Ólafur Guðmundsson Snóksdalín (f. 1761 d. 1843)
Ættartölusafn Snóksdalíns er um 1000 síður (í foliostærð). Hann afritaði það a.m.k. átta sinnum og bætti jafnan við nýjum ættliðum. Safnið kom út árið 1985 í ljósprentun í þremur bindum.
Jón Friðrik Espólín (f. 1769 d. 1836)
Ættartölubækur Jóns Espólíns eru miklar að vöxtum og að hluta byggðar á safni Ólafs Snóksdalíns. Allt safnið, átta bindi, kom út í ljósprentun auk nafnaskráa á árunum 1980-83. Gísli Konráðsson, lærisveinn og vinur Jóns, lýsti honum svo: „Fríður var hann sýnum og mikill vexti; hæð hans var 73 þumlungar, en yfir axlir og brjóst 50 þuml. að dönsku máli; armaþrekinn, fögur höndin, í smærra lagi eftir vexti og skófætur snotrir [...] ljóseygur og augun í stærra lagi og opineygur og heldur rýnd á efri árum, en sá lengst af afarvel á bók.“
Bogi Benediktsson (f. 1771 d. 1849)
Hann reit Sýslumannaæfir og segir svo um þetta framtak sitt: „Það eg reisti mér þann hurðarás um öxl, að gera tilraun að uppgötva sýslumenn á Íslandi var enganveginn í því tilliti, að eg gæti gert það verk fullkomið (hvað fáum mun takast), heldur til að vekja fróða menn að umbæta það þeir geta og leiðrétta, svo ef hver tæki við af öðrum og umbætti, að verkið yrði að lokum nokkurn veginn fullkomið, að minnsta kosti yfir 16. og 17. öldina.“
Steingrímur Jónsson (f. fyrir 1769 d. 1845)
Jón Þorkelssson taldi ættartölur Steingríms biskups afar góðar yfir ættir á milli Þjórsár og Lónsheiðar. Ættartölur Steingríms eru varðveittar á handritadeild Landsbókasafns-Háskólabókasafns með hendi Jóns Sigurðssonar.
Bjarni Guðmundsson (f. 1829 d.1893)
Ættartölu-Bjarni skrifaði fjöldann allan af ættartölum. Mesta samfellda rit hans er 10 binda verk, rúmar 4900 síður. Hann arfleiddi Hannes Þorsteinsson að ritum sínum sem kom þeim á Landsbókasafnið. Hannes ritar eftirfarandi orð framan við síðasta bindi þeirra: „Þessar ættatölubækur Bjarna Guðmundssonar eru mjög athugaverðar og ónákvæmar, nöfn manna víða hroðalega misrituð og alla vega afbökuð, svo og staðanöfn. Ættliðir eru og mjög víða skakkt raktir, annaðhvort af því að höf. hefur aflagað ættatölur þær, er hann reit eftir, eða tengt ættirnar sjálfur saman einhvern veginn út í bláinn eða eftir röngum sögusögnum.“
Einar Jónsson (f. 1853 d. 1931)
Einar skrifaði Ættir Austfirðinga, og hafði um það að segja: „Mig hefur langað til, að Ættir Austfirðinga yrðu skipulegri og auðveldari að formi og fyrirkomulagi, og vitund meira af sögulegum atriðum í þeim, en tíðkast hefur í ættatölum vorum. En mikið brestur þó á, að vel sé, einkum að því er snertir söguleg atriði. Þeir menn, sem hér eftir vinna að ættatölum, ættu að gera meira af því, en gert hefur verið, svo að ættatölurnar verði ekki tómt nafnatal.“
Jón Þorkelsson (f. 1859 d. 1924)
Hann reti m.a. Íslenzkar ártíðaskrár, en þær voru gefnar út í Kaupmannahöfn á árunum 1893-1896. „Það væri eflaust hagfelt til þess að halda við ættfræði á Íslandi, að t. a. m. hjón útveguðu sér ættartölur sínar og rituðu þar í nöfn barna sinna jafnóðum og svo niðjar þeirra, þegar fram liðu stundir, hver af öðrum, niður af nið, og mundi þá reka að því, að hver kynni ætt sína. Yrði þetta nokkuð svipað ættartölum einstakra ætta frá fornöld.“
Hannes Þorsteinsson (f. 1860 d. 1935)
Hannes gaf út Ævi lærðra manna sem varðveitt er á Þjóðskjalasafni og er megin uppistaðan í Íslenskum æviskrám. Hannes segir svo um fyrstu kynni sín af ættfræði: „En hin fyrstu verulegu kynni mín af íslenzkri mannfræði (Personalhistorie) hófust, þá er eg var um 11 ára gamall. Þá fékk eg lánað á næsta bæ 11. bindi lærdómslistafélagsritanna með prestatali Hannesar biskups yfir Skálholtsbiskupsdæmi [...] lærði eg prestatal þetta nær utan að og hef síðan verið nokkurn veginn stálsleginn í prestanöfnum og átt mjög hægt með að muna nöfn og ártöl."
Jósafat Jónasson, þekktur undir nafninu Steinn Dofri (f. 1875 d. 1966)
Ættartala Páls Eggerts Ólasonar. Steinn Dofri skrifaði eftirfarandi orð í formála að Bútum úr ættarsögu Íslendinga í Vesturheimi 1921: „Lítur svo út, að sá muni verða endirinn á sögulegu og ættfræðislegu störfunum mínum, að þau rotni í óbyggðum lands þessa ólokin, því að þeir sem völdin hafa og féð, hafa lengi ekki látist sjá mig né gefið því gaum sem ég hefi verið að vinna fyrir sögu ættjarðar minnar.“
Pétur Zophoníasson (f. 1879 d. 1946)
Víkingslækjarætt. „Eitt sinn gerði eg það að gamni mínu, að eg rakti spékopp í hægri kinn aftur um 400 ár.“
Páll Eggert Ólason (f. 1883 d. 1949)
Páll skrifaði Íslenzkar æviskrár frá landnámstíma til ársloka 1940 í fimm bindum. „Tekizt hefir betur en eg bjóst við að taka saman rit þetta (hafið var það í marsmánuði 1940 og því lokið 1947), en aldrei hefir það verið mér ljúft verk.“
Guðni Jónsson (f. 1901 d. 1974)
Bergsætt: Niðjatal Bergs hreppstjóra Sturlaugssonar í Brattholti. Um viðtökur fyrstu útgáfu Bergsættar skrifaði Guðni: „ [...] vænst þótti mér um söguna af konunni, sem sagðist geyma Bergsættina sína í eldhússkápnum hjá sér, svo að hún gæti gripið til hennar hvenær sem væri, ef hún þyrfti að rifja eitthvað upp eða láta hana minna sig á. Grunur minn er sá, að fleiri konur hafi farið þannig að.“
Einar Bjarnason (f. 1907, d. 1982)
Prófessor í ættfræði. Höfundur ritsins Íslenskir ættstuðlar, en þar segir meðal annars „Ættfærslur miðaldaættanna styðjast að mestu leyti við fornbréfin og brjóta að mörgu leyti í bág við það, sem sézt hefur rakið á prenti. Ég hef stuðzt við rannsóknir ýmissa annarra fræðimanna í þessum efnum, einkum Steins dofra, ættfræðings, sem mjög víða hefur rutt veginn, en niðurstöður mínar eru ekki ætíð hinar sömu sem hans. Ég hef leitazt við að tilgreina heimildir þar sem þess er þörf og að færa rök fyrir ályktunum mínum, en þess hvors tveggja hafa menn saknað í mörgum ritgerðum, sem rakið hafa ættir.“
Indriði Indriðason (f. 1908, d.2008)
Indriði setti saman Ættir Þingeyinga og lýsir nálgun sinni svo: „Ég vil fyrst og fremst draga fram og koma í ljósið þeim fróðleik sem unnt er um forfeður okkar. Þeim fróðleik sem allur almenningur hefur ekki aðgang að en kynni þó að vilja fræðast um og sem gagnlegt mætti teljast að koma á framfæri. Með hliðsjón af því tel ég litlu skipta hvað gerzt hefur í ártölum, atvinnu og námsframhaldi samtíðarmanna, síðustu áratugina einn eða tvo, þótt allt slíkt sé eðlilegur og framhaldandi þáttur hvers niðjatals, [..]“