Íslendingabók -

Mánaðanöfn

Vissuð þið að í Íslendingabók má finna einstaklinga sem bera nöfn allra mánuða nema febrúarmánuðar? Nú síðast bættist mannsnafnið Janúar við Íslendingabók. Hægt er að fletta upp á nöfnunum Janúar, Mars, Apríl, Maí, Júní, Júlí, Ágúst, September, Október, Nóvember og Desember. Nokkur latnesk mánaðaheiti hafa einnig verið notuð hér á landi sem mannanöfn en það eru nöfnin Janúaríus, Júníus, Júlíus og Ágústus.