|
Íslendingabók er heilsteypt skrá á
tölvutæku formi yfir ættir nær allra
Íslendinga sem heimildir eru til um. Upphaf hennar má
rekja til ársins 1988 þegar Friðrik Skúlason
hóf að skrá
ættfræðiupplýsingar í
ættfræðiforritið Espólín. Vorið
1997 hófu Íslensk erfðagreining og Friðrik
Skúlason samstarf um þessar skráningar, meðal
annars með það að markmiði að nýta
ættfræðiupplýsingarnar við
erfðafræðirannsóknir Íslenskrar
erfðagreiningar.
Íslendingabók er eini
ættfræðigrunnurinn í heiminum sem nær til
heillar þjóðar. Í henni er að finna
upplýsingar um meira en 95% allra Íslendinga sem uppi
hafa verið frá því að fyrsta manntalið
var gert á Íslandi árið 1703 og
ítarlegar upplýsingar allt aftur til landnáms.
Í Íslendingabók eru upplýsingar um
ættir um það bil 740.000 einstaklinga, en
það eru nánast allir þeir einstaklingar sem
heimildir finnast um og um helmingur þeirra Íslendinga
sem búið hafa á Íslandi frá
landnámi.
Fjöldi skráðra einstaklinga sem fæddir
eru á 20. öld er nú um 370.000 manns og tengingar
eru við báða foreldra í 95,5% tilvika. Enn
vantar þó upplýsingar um ættir allmargra
einstaklinga sem skráðir eru í grunninn og eru
þær upplýsingar þegnar með
þökkum.
|