Upphafssíða Íslendingabókar Fróðleikur um tilurð Íslendingabókar
Um ættfræði á Íslandi
Heimildir Íslendingabókar
Manntöl á Íslandi
Um kirkjubækur
Nokkrir merkir ættfræðingar
Hvernig nota skal Íslendingabók
Nokkrar algengar spurningar
Ég hef glatað lykilorðinu mínu
Skilmálar um notkun


Íslensk erfðagreining  Friðrik Skúlason ehf. 
© 1997 - 2010
Íslensk erfðagreining ehf. og Friðrik Skúlason ehf. Allur réttur áskilinn.


IBM knýr Íslendingabók

SKILMÁLAR


NOTKUNARSKILMÁLAR FYRIR VEFSÍÐUNA ISLENDINGABOK. IS OG GAGNAGRUNNINN ÍSLENDINGABÓK

1. Almennt

Íslensk erfðagreining ehf. og Friðrik Skúlason ehf. (hér eftir sameiginlega nefnd "rétthafar"), halda úti vefsíðunni islendingabok.is (hér eftir "vefsíðan"), sem veitir aðgang að gagnagrunninum Íslendingabók. Vefsíðan og Íslendingabók eru eign rétthafa. Vefsíða í skilningi þessara skilmála telst vera upplýsingar sem dreift er á heimsvísu með Hyper Text Transfer Protocol (HTTP staðli) um Transmission Control Protocol (TCP/IP) netið, sem jafnframt er nefnt Internetið. Upplýsingar um ættir Íslendinga sem birtar eru í Íslendingabók eru almennar lýðfræðiupplýsingar unnar úr opinberum heimildum. Til að fá hámarksaðgang að vefsíðunni sækir þú um notandanafn og lykilorð (hér eftir "aðgangsskilríki") sem veitir sérsniðinn aðgang að ættfræðiupplýsingum þínum. Aðgangsskilríki verða send á lögheimili umsækjanda.

2. Skilmálar

Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkunarskilmála þessa sem gilda um aðgang og notkun vefsíðunnar www.islendingabok.is og gagnagrunnsins Íslendingabókar (hér eftir "skilmálar") og lýsir því jafnframt yfir að þú sért bundin(n) af þeim. Þú ábyrgist að hafa heimild að lögum til að samþykkja skilmálana fyrir þína hönd eða þess aðila sem þú kemur fram fyrir.

Í samræmi við ákvæði lögræðislaga þarf lögráðamaður að samþykkja að einstaklingur sem ekki er lögráða nýti sér vefsíðuna. Aðgangsskilríki sem sótt er um fyrir ólögráða einstakling verða send lögráðamanni hans. Meðferð aðgangsskilríkja og öll notkun vefsíðunnar eru á ábyrgð lögráðamanns.

Heimild til aðgangs að vefsíðunni og Íslendingabók með aðgangsskilríkjum er bundin þeim einstaklingi sem þau eru gefin út til.

Um vefsíðuna, aðgang og notkun á henni gilda íslensk lög. Varnarþing vegna hugsanlegra ágreiningsmála er Héraðsdómur Reykjavíkur. Rétthafar áskilja sér rétt til að loka fyrir aðgang að vefsíðunni í heild eða hluta hvenær sem er og án fyrirvara.

3. Takmörkun ábyrgðar

Rétthafar skulu ekki vera ábyrgir fyrir fjárhagslegu eða ófjárhagslegu tjóni af neinu tagi sem þú eða aðrir kunna að verða fyrir vegna, eða í tengslum við notkun þína á vefsíðunni eða upplýsingum úr Íslendingabók. Í þessu sambandi skal sérstaklega tekið fram að rétthafar bera enga bótaábyrgð vegna tjóns af nokkru tagi sem kann að verða vegna þess að upplýsingar á vefsíðunni reynast rangar, óáreiðanlegar, óheppilegar og /eða ekki tæmandi. Rétthafar taka enga ábyrgð á því að upplýsingar í Íslendingabók séu réttar.

4. Notkun

Heimilt er að skoða, vista og afrita upplýsingar úr Íslendingabók til einkanota. Upplýsingar úr Íslendingabók má einnig nota til að vinna og staðfesta ættfræðiupplýsingar við útgáfu hefðbundinna prentaðra ættfræðirita og æviskráa. Geta skal heimildar ef slíkar upplýsingar eru gerðar opinberar með einhverjum hætti, svo sem með útgáfu á bókarformi eða birtingu í blöðum og tímaritum. Heimilt er að tengja vefsíðuna við aðrar vefsíður með krækju. Rétthafar áskilja sér rétt til að afturkalla slíka heimild hvenær sem er. Notkun hugbúnaðar á vefsíðunni er heimil að því marki sem hún er nauðsynleg til að framkvæma aðgerðir sem leyfðar eru á vefsíðunni skv. skilmálunum.

Óheimilt er að gera vefsíðuna að hluta af annarri vefsíðu án skriflegs samþykkis rétthafa.

Óheimilt er að nota upplýsingar fengnar úr Íslendingabók til þess að smíða gagnagrunn á tölvutæku formi í viðskiptalegum tilgangi. Endurtekinn og kerfisbundinn útdráttur og/eða endurnýting hluta af Íslendingabók er óheimil, jafnvel þótt óveruleg sé, ef þær aðgerðir stríða gegn venjulegri nýtingu Íslendingabókar í tengslum við vefsíðuna, eða ganga með óeðlilegum hætti gegn hagsmunum rétthafa.

5. Lögvernd

Vefsíðan og Íslendingabók, þar á meðal vörumerki, þjónustumerki, viðskiptaheiti, tölvuforrit, vinnsluaðferðir og notendaviðmót eru vernduð af íslenskum og erlendum lögum og reglum um hugverka- og einkaréttindi, þar með talið af höfundalögum nr. 73/1972, lögum um vörumerki, nr. 45/1997, lögum um einkaleyfi nr. 17/1991 og alþjóðlegum sáttmálum á sviði hugverka- og einkaréttinda.

Upplýsingar sem skráðar eru í Íslendingabók eru staðreyndir í almannaeigu sem unnar eru úr opinberum ættfræðiupplýsingum og njóta því sem slíkar ekki verndar höfundarréttar. Íslendingabók nýtur hinsvegar lögverndar sem gagnagrunnur samkvæmt höfundalögum nr. 73/1972 með síðari breytingum, samanber einnig alþjóðlegar reglur um sama efni, svo sem tilskipun Evrópusambandsins um lögverndun gagnagrunna nr. 96/9/EB.

© 1997-2003 Íslensk erfðagreining ehf. og Friðrik Skúlason ehf. Allur réttur áskilinn.

Fara efst á síðu